Heimildir og aðferðir
Hvaðan koma gögnin?
Allt er sótt úr opinberum gögnum og vistað með SHA-256 fingrafari svo hægt er að rekja hverja tölu til skjals.
Alþingi
Fjárlagafrumvörp (þingskjal 1), samþykkt fjárlög („lög í heild“) 2006–2026 og fjáraukalög 2006–2025 (frumvörp, lög, fylgirit og breytingartillögur nefndar sem gefa stofnanalínur laganna) sem PDF. Töflur lesnar úr textalagi með pdftotext -layout; síður án textalags lesnar með Tesseract (íslenska). Málsferlar sóttir með Camoufox.
Stjórnarráðið og Fjársýslan
Fjárlög, fylgirit og talnagögn (CSV/XLSX) 2018–2027 með raun 2017, 2018, 2020, 2021 og 2023–2025. Ríkisreikningur 2006–2025 (PDF Fjársýslunnar á island.is) gefur raun og lokaheimildir (nettó) eftir stofnunum öll árin; PDF-raun er á rekstrargrunni og um 1,5–2,4 % hærri en talnagögnin.
Hagstofa Íslands
Fjármál ríkissjóðs 1998–2025 (PX-vefþjónusta): heildarútgjöld eftir COFOG, hagræn skipting, tekjur. Verðvísir fyrir raunvirði er leiddur af töflu THJ05242.
Umfang í hnotskurn
Hvað gagnagrunnurinn geymir á stofnanastigi.
- Raun (ríkisreikningur) eftir stofnunum 2006–2025: PDF 2006–2016, 2019 og 2022, talnagögn 2017, 2018, 2020, 2021 og 2023–2025 (PDF-útgáfa þeirra ára er geymd til samanburðar, sjá grunnmun hér fyrir neðan).
- Heimildir (lokaheimild ársins með fluttum heimildum, nettó) eftir stofnunum 2006–2025 úr PDF ríkisreiknings; afrit í talnagögnum sem voru sömu tölur og raun hafa verið fjarlægð.
- Samþykkt fjárlög á stofnanastigi 2006–2027: 2017 og 2020 bættust við (lesin á móti prentuðum heildartölum, „enacted_checks“), 2022 kemur úr talnagögnum.
- Fjáraukalög á stofnanastigi 2006–2025: stofnanalínur ná yfir 88–99,6 % af lögum hvers árs (
agency_share); aðeins 2017 er undir 95 % og telst „að hluta“. Frá 2017 eru líka málaflokkatölur. - Forverar og sameiningar: handskráðar nafnbreytingar, sameiningar og skiptingar stofnana (
names.LINEAGES) eru lagðar saman í sögu hverrar stofnunar.
Umfang eftir árum og stigum
Samræming við prentaðar heildartölur skjalanna…
Fjáraukalög eftir árum
Breytingar á fjárlögum ársins (viðbætur og lækkanir), allar samþykktar breytingar ársins lagðar saman. „Sundurliðun“ sýnir hve stór hluti laganna er skipt á stofnanir (agency_share): 95 % eða meira telst á stofnanastigi, annars að hluta.
Öll fjáraukalög og frumvörp
Eitt skjal í hverri línu, með tengli á PDF hjá Alþingi. Frumvörp sem dagaði uppi eru skráð en ekki talin með tölum.
Gagnagæði
Samræming við prentaðar tölur, eftir uppruna
Hver lesinn skjalaflokkur borinn saman við heildartölur sem skjalið prentar sjálft (vikmörk 0,5 %).
Athuganir eftir árum
Raun: PDF ríkisreiknings á móti talnagögnum
Sama ár tvisvar: PDF-bókin sýnir raun á rekstrargrunni (Gjöld−Tekjur að viðbættum Ráðstöfun, þ.e. fjárfestingu) en talnagögnin á fjárlagagrunni. Munurinn er 1,5–2,4 % og er mestur hjá Vegagerðinni.
Fluttar og viðbótarheimildir eftir árum
Heimild − (fjárlög + fjáraukalög): fé sem flutt er milli ára eða bætt við utan fjáraukalaga.
Fjáraukalög: sundurliðun eftir stofnunum
Hlutfall laga ársins sem er skipt á stofnanir (agency_share, vegið eftir upphæð). Ráðandi fyrir hvort fjáraukalög eru dregin frá á stofnanastigi í framúrkeyrslu.
Samfella 100 stærstu stofnana
Sameiningar og nafnbreytingar á móti upphæðum
Aðferðir og fyrirvarar
- Stig: frumvarp (lagt fram), fjárlög (samþykkt), fjáraukalög (breytingar á fjárlögum ársins), ríkisreikningur (raun), heimildir (lokaheimild ársins með fluttum heimildum), áætlun (fjármálaáætlun). Stigum er aldrei blandað saman í einni tölu; fjáraukalög eru breytingar sem leggjast við fjárlög sama árs.
- Framúrkeyrsla = raun − (fjárlög + fjáraukalög), nettó (gjöld umfram eigin tekjur) þar sem til, annars brúttó (2017 og 2018). Fjáraukalög eru dregin frá á stofnanastigi þegar stofnanalínur ná yfir a.m.k. 95 % af lögum ársins (öll ár 2006–2025 nema 2017: 88 %); í „að hluta“ ári dragast aðeins upptaldar stofnanir frá og viðbætur geta verið inni í framúrkeyrslu hinna. Brúttó grunnur er aðeins notaður 2017 og 2018.
- Raun á móti heimild er aðeins borin saman á sama grunni: raun og heimild úr PDF ríkisreiknings (rekstrargrunnur, nettó). Raun úr talnagögnum er um 2 % lægri (taflan hér fyrir ofan) og er aldrei borin saman við heimild án þess að það sé tekið fram.
- Flutt heimild = heimild − (fjárlög + fjáraukalög). Hún skýrir oft hvers vegna raun fer fram úr fjárlögum án þess að fara fram úr heimild (5 % af fjárlögum 2006, 9–13 % 2021–2025).
- Óreiðufé: lífeyrisskuldbindingar (09-381), afskriftir skattkrafna (09-711), tapaðar kröfur (09-973) og niðurfærsla eignarhluta (09-979) eru bókhaldsfærslur án sjóðstreymis (192 ma.kr. 2008, 160 ma.kr. 2016) og eru ekki taldar með í framúrkeyrslu, vexti eða raunþróun.
- Samræming: hver PDF er lesin á móti heildartölunum sem prentaðar eru í sama skjali (vikmörk 0,5 %); niðurstöðurnar sjást í töflunni hér að ofan.
- Heimildir 2017–2025 eru lesnar úr PDF ríkisreiknings (ekki talnagögnum). Línur sem bókin 2023 prentar ekki í stofnanatöflunum eru fylltar úr séryfirlitum sömu bókar. Stór frávik raunar frá heimild eru flokkuð eftir orsök (rr_outliers). Brúttóheimild 2017–2025 er reiknuð (nettó heimild + áætlaðar eigin tekjur), ekki prentuð.
- Raunvirði: verðlag 2025 með vísi Hagstofunnar; ár eftir 2025 framreiknuð með 3,5 % verðbólgu.
- Liðanúmer, sameiningar og nafnbreytingar: breyttust við endurskipulagningu ráðuneyta (t.d. 2022). Handskráð saga (
names.LINEAGES: ár, tegund, skýring og heimild) leggur saman forvera sameinaðra stofnana; stofnanasíður sýna atburðina og tengdar stofnanir. Samanburður á milli ára sem spannar sameiningu er merktur („sameinað 2013“). - Sóunarratsjá sýnir vísbendingar til skoðunar. Framúrkeyrsla getur skýrst af fjáraukalögum, millifærslum eða lögbundnum útgjöldum.
- Spjall notar Claude (Anthropic). Leit og vigrar keyra á eigin vél; aðeins spurningar og niðurstöður verkfæra fara til Anthropic.